My own blogg:)
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
02.09.2006 20:16:55 / agnes

Þá er þessi síða komin í pásu!!

Komin með nýja sem er www.123.is/agnesyr tékk it out!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 19:42:48 / agnes

Halló pípol!!

Hef ekki rassgat að segja ykkur. Sit bara hérna niðrí vinnu hjá Erlu og er að bíða eftir að hún verði búin að vinna sem er vonandi bara eftir smá!! Útaf ég er búin að éta yfir mig af súkkulaði sem hundahótelið býður uppá:haha: og búin að skoða allt sem mér dettur í hug á netinu, sem er nú reyndar ekki margt!!! En helgin framundan verður bara RÓLEG suprise suprise.. en við ætlum bara að kíkja á ljósanótt í keflavík annað kvöld og planið er að gera ekki baun í kvöld nema slaka á í Grindó-city..

Ég er ný komin heim frá spáni, sem var alveg geggjuð ferð!! Ég sat á fíl hehhe sko alvöru fíl það var ekkert smá skrýtið... Djöfull stinka þeir og þeir eru ekkert smá heitir með svona nokkur hár á sér! En ég get þó sagt: Ég sat á fíl.. En nóg um það ég fór í tívoli sem heitir terra mitica og þar dó ég næstum því úr hræðslu!! Draugahúsið þar er ekki fyrir yngri en 30 ára og það er sko ekkert grín liggur við!! Við vorum öll með hjartað í brókunum! En ég brann að venju kanski útaf ég setti á mig olíu heheh

En veiiii Erla er búin að vinna ætlum að koma okkur í að gera eikkað tjátjá...


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 20:48:45 / agnes

10, 9, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1, 0 --->> kabúmm!!!

Jæja það styttist óðum í spánarferðina og mér er bara farið að hlakka frekar mikið til! Hiddy og þau eru öll komin út og eru að gera allt reddy fyrir prinsessuna heheh:haha: Ég trúi því valla að sumarið sé að verða búið, skólinn byrjar eftir 2 vikur:cry: En ef maður lítur á björtu hliðina að þá styttist bara í það að þetta verði búið get gjörsamlega ekki beðið eftir því að klára skólann og komast út í svona ca. 1 ár og upplifa eikkað skemmtilegt og kynnast nýju fólki. En annars er allt svona semy gott að frétta hjá mér. Vonandi hjá ykkur líka en ég verð að hætta, tjá tjá kiss og knús ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 15:08:30 / agnes

Fokking bjutiful!!!!

Jæja hvað segiði þa? Það er allt gott að fretta af mer.. Eg er ny komin heim fra Danmörk.. Þetta var bara finasta ferð:) Hitti fullt af folki sem eg kynntist i fyrra sem var alveg frabært! En það er alveg bokað að eg fer ekki svona 1 aftur never ever!  En framundan er bara vinna og ekki nog með það heldur i þessu skitaveðri sem island biður uppa!! Maður er bara við það að drukkna þarna:evil: En eg hef þo eikkað til að hlakka til er nebbla a leiðinni til spanar jibiii... Eg fer með mömmu og öllum þeim og svo eru Hiddy, Adam, Lilja og Alex þarna lika a sama tima þannig þetta verður geggjað.. Vona bara að það komi einn i viðbot en það kemur i ljos seinna! A nu samt ekki von a þvi að koma eikkað brun til baka þar sem eg brann til helvitis uti danmörk og eg er sko enþa að liða fyrir það takk fyrir!! En það er bara solarvörn nr 32 og solhlif veihhh... heheh.. En svo er það bara skolinn strax eftir að eg kem heim! En eg verð 1 heima i viku NICE :haha:  En eg bið að heilsa i bili tjatja XX


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 22:43:22 / agnes

WOW it has been a long time!!

Jæja það er orðið helv. langt siðan siðast! Og margt buið að gerast siðan þa!! Eg er t.d. komin i aðra vinnu bahhh ekki þa skemmtilegustu, það vill svo til að eg er flokkstjori i unlingavinnunni a Selfossi! VEIHHH en juju þetta er fint þegar það er sol en það er bara aldrei sol!! En það styttist oðum i Roskilde eg fer ut eftir 9 daga fokk hvað það a eftir að vera gaman er kanski buin að næla mer i tuborg miðan aftur sem er nattla bara algjör snilld... Mer hlakkar lika svo til að hitta alla sem eg kynntist i fyrra;) Eg keypti mer miða til spanar i dag, það eru held eg komin 6 ar siðan siðast.. Þannig það verður bara fjör:) Eg hef nu ekki mikið að segja nuna er bara buin að vera veik i 2 daga:( en er öll að koma til! Svo er það bara helgin framundan hef nakvæmlega ekki hugmynd um hvað eg geri en það verður eikkað..

En eg held eg segi þetta bara gott i bili.. bæbæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 01:02:21 / agnes

Ohhhhhh dises.....

Nuna er eg að geggjast a þvi að bua a Selfossi og hafa engan stað til að vera a i bænum!! Bara pirrandi sko... Mer vantar svo að leigja eikkað en eg nenni ekki að standa i þvi utaf eg er að fara ut til dk og kanski eikkað meir er ekki alveg akveðið.. Og þa væri eg bara að henda peningum i ekki neitt ohhhh er að fkn geggjast sko:(  Langar að eiga bara ibuð herna i rvk það væri fint hmmm kanski maður ætti að fara að festa kaup a einni slikri kanski komin timi til!! Held það sko... Það var fint þegar amma bjo i bænum og var uti i Hollandi þa hafði eg agætis ibuð fritt i man ekki hvað langan tim en samt slatta minnir mig hehe.. Fer abyggilega að bua hja Erlu meðan Matti er a sjo og fer að vinna með henni.. Og svo lika að vinna i bænum það verður sko mikið að gera hja minni:) En eg ætla að hætta að röfla er bara að springa ur pirring af mörgum astæðum akkurat nuna:evil: En það lagast vonandi eftir að eg festi svefn og vakna aftur hope sooooooo..... En eg varð bara að fa utras a eikkerju heheh.. Jæja er farin að horfa a Sex and the City:haha:

Good Nighty Night....


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 23:17:48 / agnes

Jæja það er orðið helv... langt siðan siðast!!

Jaha það er bara allt gott að fretta af mer:D En af ykkur? Samt sko bara leiðinlegur timi framundan eða alveg þangað til 9.mai proflestur uti eitt svo maður nai nu kanski eikkerju:S En allavega þa fengum eg og Steina inngöngu i spænskuskolann i gær þannig BARCELONA baby i sumar eins og fram hefur komið kokteill i einni og kanski bara sukkulaði sætur strakur i hinni hahahah... Það er eikkað að lyklaborðinu minu get ekki gert kommu yfir stafina það kemur bara ´´ svona ef eg reyni bara pirr!! En ja eg er buin 9 og þa verður sko djammað af ser assgatið til að fylla uppi eyðurnar heheh... En eg hef nu litið að segja hmmmm.... er komin með fastar vaktir a Caruso þannig eg verð eiginlega alltaf i rvk jeiiiiii.... :) For a djammið um daginn það var agætt kikti a pravda og hverfis og eikkað hitti fullt fullt af folki svaka gaman... Fekk ogeð af Topas staupi þetta kvöld enda var eg með það i bolla þangað til það var buið :haha: frekar ogeðslegt!! En það virðast allir vera komnir i pasu8| nema eg...Hvað gerir Agnes þa hmmmmm.... plan plan hahah.... En hef nakvæmlega ekkert að segja nuna nema bara bless bless i bili...

Agnes XXX


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 00:08:11 / agnes

Páskafríííí.... ;)

Það er náttla bara nice að vera komin í smá frí frá skólanum! Eða allavega eru áhyggjurnar um skróp í fríi heheh... En helgin var bara mjög róleg var bara að vinna alla helgina og fór bara snemma í háttinn bæði kvöldin.. En til að bæta mér það upp er Deep dish að spila á nasa á miðvikudaginn, það verður algjör klikkun:) En það er mjög lítið að gerast hjá mér þessa dagana bara vinna eins og mofo... allt páskafríið, en það er bara money money hehe.. Enda erum ég og Steina búnar að plana verslunarleiðangur til að verðlauna okkur dugnaðinn:) Og svo er ég bara að kafna úr spenningi útaf sumrinu, er að fara að bóka allt dæmið á morgun og næstu daga:) Barcelona here I come...8)

En er farin að sofa góða nótt ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 22:55:34 / agnes

Mér leiddist:)

 

Fann þetta alveg svakalega sniðuga dót hérna, það er margt sem maður hefur prófað á lífsleiðinni:)

 

(  ) klesst bíl vinar/vinkonu
(  ) stolið bíl 
(  ) verið ástfangin
(  ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(x) faðmað einhvern ókunnugann
(x) verið rekin/n - 1x takk fyrir:)
(x) lent í slagsmálum - já, ekki gaman:(
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
(x) verið handtekin/n - heheh var nu samt bara 14:)
(x) farið á blint stefnumót - bara 1x heheh... 
(x) logið að vini/vinkonu - ætli það ekki!!
(x) skrópað í skólanum
(  ) horft á einhvern deyja 
(x) Reykt sígarettu
 

(x) drukkið áfengi –ha ég neiii
(  ) farið til Canada
(  ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
(  ) kveikt í þér viljandi
(x) borðað sushi
(  ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
(  ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) grátið svo mikið að þér finnst þú aldrei ætla að hætta
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(  ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n - hmmm ja 
(  ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
(  ) verið rekin/n eða vísað úr skóla

(x) lent í bílslysi - ég var ekki að keyra heheh 
(  ) verið með spangir/góm

(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni 
(  ) borðað líter af ís á einu kvöldi

(x) fengið DEISJAVÚ
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út

(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(  ) verið gagntekin/n af post-it miðum
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið tínd/ur

(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja - eftir tjodhatid 2005 wow...
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik 

(  ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(  ) stungið Lögregluna af

(  ) verið kysst undir mistilteini
(  ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um

(x) blásið sápukúlur
(  ) kveikt bál á ströndinni 
 

(  ) komið óboðin/n í partý 

(  ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
(  ) farið í fallhlífastökk
(  ;) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti
(x)kysst manneskju af gagnstæðu kyni
(x)kysst manneskju af sama kyni 

 

 

Jáhá þá er þetta komið:)

 

En helgin var bara nokkuð góð... ég var blindblindfull á föstudaginn enda var líka ekki drukkið lítið!!! Ég og Hiddý drukkum heila flösku bara 2! 1  líter af passova takk úff.. Svo á laugardaginn kíktum við aðeins heim til Birtu og Binna, alveg rosalega flott íbúðin þeirra.. Svo fórum við aftur heim til Hiddýar og þangað komu nokkrir manns og ég og Diddi og Geiri kíktum niðrí bæ á Grand rock sem var alveg helv. gaman svo var ferðinni haldið á Celtic Cross hittum alveg fullt af fólki og svo þaðan bara heim í háttinn:)

Svo var ákveðið að kíkja uppí sveit 14. april - 16. og mun það vera sannkölluð diskóhátíð á borgarnesi er þar rétt hjá:)

 

En nóg í bili

Later:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 23:08:42 / agnes

Sometimes I even suprise my self!!

Já þessi helgi var bara róleg, ég átti nú ekki von á því en þetta er fyrsta helgin á árinu held ég sem ég svaf heima, þá meina ég sko alla helgina! Gusgus var nebbla í gær og yfirleitt iða ég öll í skinninu af tilhugsun við það bara að vera á leiðinni á nasa hhehe kannski er ég að fullorðnast:lol: En ég er komin í eitthvað stuð og ákvað að losa mig við alla leiðinlega ávana... t.d. hætta að naga neglurnar!! Mission complete hehe... hætta að reykja.. mission almost complete, er búin að vera hætt síðan 23.mars og langar bara ekkert í sígó:haha: Þetta er geðveikt skrýtið en núna veit ég hvernig fólki líður sem reykir ekki! Eða bara lyktin sko ojjjjjj... En kannski tekst þetta og kannski ekki þannig það er mánuður í það þangað til ég get byrjað að monta mig:) og svo eru 2 eftir sem ég er að vinna í! Segi bara betur frá því þegar ég er laus við það heheh... En ég er mikið að hugsa um Barcelona, og er að fara að ath þetta allt á morgun kostnað og svona þannig þetta ætti allt að koma í ljós á næstu dögum.. get ekki beðið sko!! Mig dreymir um strönd, sæta stráka, kokteila í öllum litum og klúbbana mamma mía here I come heheh... En burt úr dreamland í smástund og aftur í raunveruleikann, verð nebbla að fara að læra:(

Later pípol8) kkkk.gif


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 13:05:18 / agnes

Danmörk eða Barcelona hmmm... eða bara bæði!

Jæja pæja... Þá er bara komin miðvikudagur úff og næsta helgi alveg að koma! En hin var fín ég var að vinna á föstudaginn og fór svo á vík á laugardaginn sem var geðveikt gaman! En ég og Bryndís vorum að fá hugdettu og erum að spá í að fara til Barcelona í sumar í spænskuskóla í 6 vikur eftir hróaskeldu! Held þetta gæti orðið klikkað gaman! Komum svo heim um miðjan ágúst brúnar og sætar:) En þá er líka að byrja spara svo maður geti haldið sér uppi á spáni:) En þetta kemur allt í ljós... En nóg í bili LATER!

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 09:27:51 / agnes

Þá er maður kominn heim frá danmörk!!

Já ég hefði nú ekki getað talað meir um þessa Danmerkur-ferð mína en hún er á enda og þetta var bara hið ágætasta frí:) Ég og Guðrún höfðum það bara notlegt og keyptum smá föt og fórum útað borða og svona. Svo hittum við Lilju og Alex og fleirra skemmtilegt fólk á föstudeginum og kítum á gamla góða Foley´s sem er írskur pöbb helv... comfó;) Og á laugardeginum var kíkt í partýið sem var svo ekkert eins æðislegt og ég hélt!!! En samt ágætt:) En díses er gjörsamlega að drukkna í vinnu og verkefnum þannig það verður ekki mikið af mér á djamminu næstu daga eða það er planið:) Maður veit aldrei hvað helgarnar bera í skauti sér heheh.... En nóg í bili.... Tjátjá....
P.s. kommentiði pípol langar að sjá hverjir eru að koma hérna inn!!!!

» 11 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 12:45:59 / agnes

Maður cant valla think....

Strax komin önnur helgi:!: En síðasta var ágæt fór á Timo Maas sem var bara fín skemmtun var heldur drukkinn enda var byrjað mjög snemma að drekka.. svo á laugardaginn var bara slökun heima hjá Hiddý:) Já svo er það þessi helgi.. veit eiginlega ekkert hvað ég á að gera af mér á morgun en á laugardaginn held ég að stefnan sé tekin í Keflavík en það kemur í ljós:) Það á víst að vera eikkað geðveikt partý þar þannig ég hugsa að maður breyti útaf gömlum vana og prófi eikkað nýtt... En ég held ég sé að verða veikur:( bölvuð sé flensan!! En ég er svo sterk að ég læt það ekkert buga mig hehe en nóg í bili hádí.....

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 14:14:13 / agnes

Sjómaðurinn my friend.....

Já þetta var heldur betur full helgi... Ég byrjaði að kanna miðbæinn á föstudaginn og kíkti þá á Celtic cross ásamt nokkrum öðrum..

En á laugardaginn var brunað beint í rvk eftir vinnu og hent í sig nokkrum glösum og svo lá leiðin niðrí bæ með góðum hóp af fullu fólki:) Shit hvað var mikið af fólki fyrir utan skemmtistaðina endalausar raðir útum allt!!! Við löbbuðum upp og niður laugarveginn þangað til við enduðum í þvílíkri kremju og keppni við blinfullann almúginn sem reyndi að troða sér inn á Celtic cross... Þar fékk mér þó nokkur fisherman staup.. og var farin að syngja.. .Ég er nú ekki vön að fara á svona staði þegar ég fer út, en þetta sama kvöld fór ég á 11 og Amsterdam!! Þar sem ég dansaði uppá á borði við góðann hittara úr grease... hahah En þótt ég hafi ekki farið á þessa vanalegu staði skemmti ég mér konunglega meðal allra silvíu nóttana nætrana what ever... hvernig maður beygjir það... og vina minna:) 

Svo fór ég í party eftir allt saman og vaknaði með BLÁTT yfirvaraskegg... var víst komin í skytturnar 3 leikinn eða eikkað.......haha... :haha:

lovely tender lovely blue....


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 11:33:38 / agnes

Vá er ég að missa af einhverju?

Hvaða hvaða 64 búnir að heimsækja mig í dag!! Er eikkað í gangi sem ég veit ekki af? hehe en allavega var að kaupa mér tölvu.. algjör snilld að vera komin með eina slíka:D En nenni ekki að skrifa meir síjaaa....


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan